PET EXPO 2027

27. feb 2027 13:00-18:00
28. feb 2027 13:00-18:00

PET EXPO 2027

PET EXPO 2027 verður fjölbreytt og lifandi sýning fyrir alla sem eiga gæludýr, elska dýr eða vilja kynnast því nýjasta sem tengist gæludýrunum okkar.

Á einum stað koma saman fyrirtæki, sérfræðingar, félög og þjónustuaðilar með fjölbreytt úrval af vörum, þjónustu og nýjungum fyrir hunda, ketti og önnur gæludýr.

Gestir geta kynnt sér allt frá fóðri, heilsu og umhirðu til búnaðar, leikfanga, þjálfunar, tækni og þjónustu, auk þess að njóta fjölbreyttrar dagskrár, fræðslu, kynninga og skemmtilegrar upplifunar fyrir alla fjölskylduna.

PET EXPO verður vettvangur þar sem gæludýraeigendur, dýravinir og gæludýrageirinn mætast – þrír dagar fullir af nýjungum, fróðleik, upplifun og skemmtun.

 

PET EXPO 2027 fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði
26.–28. febrúar 2027

 

Komdu og upplifðu allt það besta fyrir gæludýrin okkar – á einum stað.

Okkar samstarfsaðilar

Allt neðangreint og meira á PET EXPO 2027

Fóður og búnaður

Gæðafóður, nammi, leikföng, bæli, fatnaður og fylgihlutir fyrir gæludýr

Heilsa og umhirða

Dýralæknar, snyrting, heilsuvörur, bætiefni og ráðgjöf um vellíðan dýra

Fræðsla og þjálfun

Þjálfun, hegðunarráðgjöf, námskeið og fræðsla um ábyrgt gæludýrahald

Sýningar og afþreying

Sýningar, keppnir, kynningar og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Dýravelferð og félög

Dýravernd, ættleiðing, ræktunarfélög og samtök sem starfa í þágu dýra

Þjónusta og tækni

Tryggingar, skráning, gæsluþjónusta, snjalllausnir og sérhæfð þjónusta

Niðurstöður viðhorfskönnunar meðal gesta á sambærilegum sýningum

Gerðar hafa verið kannanir meðal gesta sýninga sem viðburðahaldarar hafa haldið, þar sem þeir eru spurðir um hvað skiptir þá mestu máli, með það að markmiði að koma enn betur til móts við væntingar þeirra.

Niðurstöður síðustu könnunar voru afar jákvæðar og sýna svart á hvítu að sýningin nær að skapa bæði ánægju og virði fyrir gesti og þátttakendur. Sérstaklega vakti athygli hversu hátt hlutfall gesta nýtti tækifærið til að versla vörur eða þjónustu á staðnum:

  • 61,2% gesta keyptu vörur og/eða þjónustu á sýningunni

  • 87,8% lýstu því yfir að þeir væru „Mjög ánægðir“ eða „Ánægðir“ með sýninguna

  • 88,7% töldu vöru- og þjónustuframboðið „Mjög gott“ eða „Gott


Þessar niðurstöður eru sterkar vísbendingar um að sýningin sé ekki aðeins að uppfylla væntingar, heldur einnig að skapa lifandi vettvang þar sem gestir fá jákvæða upplifun, fjölbreytt val og raunverulegt virði fyrir sinn tíma og fjármuni.